13
 1-2  Hversu lengi ætlar þú Drottinn að gleyma mér – að eilífu, eða hvað? Ætlar þú sífellt að horfa í aðra átt þegar ég er í nauðum staddur?  3 Hve lengi verð ég að byrgja inni angist mína? Hve lengi eiga óvinir mínir að hreykja sér upp yfir mig?  4 Svara mér Drottinn, Guð minn, og sendu mér ljós þitt, annars er úti um mig! 
 5 Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!“ Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig. 
 6 En, – ég mun treysta þér og miskunn þinni hvað sem á gengur og fagna yfir hjálp þinni!  7 Ég vil lofsyngja Drottni, því að ríkulega blessaði hann mig.