47
 1-2  Komið allar þjóðir! Klappið saman höndum af gleði! Hrópið af fögnuði fyrir Guði!  3 Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar.  4 Hann hefur beygt þjóðir undir sig  5 og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael. 
 6 Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi. 
 7-8  Lofsyngið Guði, konungi okkar. Já, syngið lofgjörðarsöng fyrir konunginn, konung allrar jarðarinnar. Lofsyngið Guði!  9 Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu.  10 Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.