93
 1-2  Drottinn er konungur! Hann er íklæddur mætti og dýrð. Heimurinn allur er hásæti hans. Ó, Drottinn, þú hefur ríkt frá örófi alda.  3 Brimöldur hafsins boða dýrð þína.  4 En þú ert meiri en voldugar öldur sem brotna við strendur úthafanna!  5 Skipunum þínum fær enginn breytt og heilagleiki er einkenni húss þíns að eilífu.