43
1 Ó, Guð, láttu mig ná rétti mínum gegn svikulum og vondum mönnum sem ásaka mig. 2 Þú einn ert Guð, skjól mitt og vígi. Hvers vegna hefur þú vísað mér frá? Hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum? 3 Sendu ljós þitt og sannleika til að vísa mér veginn að musteri þínu á Síon, fjallinu þínu helga. 4 Þar vil ég ganga að altari Guðs, uppsprettu gleðinnar, og lofa hann með hörpuleik. Ó, Guð, – minn Guð!
5 Sál mín hvers vegna ertu döpur og kjarklaus? Treystu Guði! Víst mun ég fá að lofa hann á ný, því hann mun hjálpa mér og aftur mun auglit mitt gleðjast!