58
1-2 Þið konungar og leiðtogar þjóðanna, talið þið sannleika? Er réttlæti í dómum ykkar og úrskurðum? 3 Nei, svo er ekki. Þið eruð allir svikarar sem seljið „réttlæti“ fyrir mútur. 4 Slíkir menn hafa allt frá fæðingu vikið af réttum vegi. Þeir hafa talað lygi frá því þeir fengu málið. 5-6 Eiturnöðrur eru þeir, slöngur sem daufheyrast við skipunum særingamannsins.
7 Drottinn, slíttu úr þeim eiturbroddinn! Dragðu vígtennurnar úr þessum vörgum, ó Guð. 8 Láttu þá hverfa eins og jörðin hafi gleypt þá. Sláðu vopnin úr höndum þeirra. 9 Láttu þá þorna upp eins og snigla og ekki sjá sólina frekar en þeir sem andvana eru fæddir. 10 Guð mun svipta þeim burt, eyða þeim skjótar en pottur hitnar yfir eldi.
11 Þá munu hinir guðhræddu fagna, þegar réttlætið sigrar og þeir fá að ganga um blóðidrifin stræti fallinna óvina. 12 Þá munu menn sjá að réttlætið sigrar og að Guð dæmir jörðina með réttvísi.