64
1-3 Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig! 4 Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. 5-6 Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn,“ segja þeir. 7 Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“ Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
8 En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá 9 Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og 10 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir. 11 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.