120
1 Ég ákalla Guð í neyð minni og hann hjálpar mér.
2 Drottinn, frelsaðu mig frá svikum og prettum. 3 Þú lygatunga, hver verða örlög þín? 4 Oddhvassar örvar munu stinga þig og glóandi kol brenna þig!
5-6 Hvílík mæða að búa með óguðlegum! Ég er þreyttur á þeim sem hata friðinn. 7 Ég þrái frið, en þeir elska stríð og láta ráð mín sem vind um eyrun þjóta.