120
 1 Ég ákalla Guð í neyð minni og hann hjálpar mér. 
 2 Drottinn, frelsaðu mig frá svikum og prettum.  3 Þú lygatunga, hver verða örlög þín?  4 Oddhvassar örvar munu stinga þig og glóandi kol brenna þig! 
 5-6  Hvílík mæða að búa með óguðlegum! Ég er þreyttur á þeim sem hata friðinn.  7 Ég þrái frið, en þeir elska stríð og láta ráð mín sem vind um eyrun þjóta.